Beint á leiðarkerfi vefsins
Eir öldrunarmiðstöð

Skammtímadvöl

Á móttökudeild 4. hæðar í A-húsi eru sex rými nýtt fyrir skammtímadvöl.

Skammtímadvöl er ætluð öldruðum sem dvelja heima og er áætlaður dvalartími 2-6 vikur í senn. Möguleiki getur verið á skammtímadvöl oftar en einu sinni á ári. Dvölin er ætluð til endurhæfingar og til að fara yfir heilsufarsástand einstaklingsins en einnig til að létta undir og hvíla þá sem styðja við búsetuna heima.

Beiðni um fyrstu dvöl kemur frá lækni viðkomandi. Væntanlegum dvalargestum er raðað niður í rýmin með allt að þriggja til fjögurra mánaða fyrirvara.

Markmið með dvölinni er að stuðla að því að einstaklingurinn geti búið sem lengst heima.  Meðan á dvöl stendur er farið yfir heilsufarsástand og boðin sjúkraþjálfun og endurhæfing í daglegum athöfnum. Metin er þörf fyrir hjálpartæki og heimaþjónustu.

Deildarstjóri 4. hæðar er Ingibjörg Hjálmarsdóttir   ingibjorg@eir.is    sími deildarstjóra: 522 5749

Hjúkrunarfræðingur á vakt: 522 5742 / 860 7405

Deildarsími: 522 5741

Deildarfax: 522 5715

Deildarlæknar: Ólafur H. Samúelsson og Hjörtur Þ. Hauksson


Stækka og minnka texta

Texti í sjálfgefinni stærð Texti í miðlungs stærð Texti í stórri stærð

Þú er hér:

Um Eir » Skammtímadvöl