Saga Eirar
Upphaf hjúkrunarheimilisins Eirar má rekja til umræðu hjá aðilum Umönnunar- og hjúkrunarheimilisins Skjóls um hvaða leiðir væru færar til að mæta vanda aldraðra sjúkra. Starfshópur sem Sigurður H. Guðmundsson, Halldór Guðmundsson, arkitekt og Bjarni Frímannsson, verkfræðingur skipuðu gerðu tillögu að öldrunarmiðstöð í Grafarvogi. Bygginganefnd aldraðra í Reykjavík tók málið að sér og vann tillögu að hjúkrunarheimili á þeim stað sem Eir er nú. Tillögur að hjúkrunarheimilinu Eir lágu fyrir árið 1990 og í framhaldi af því var sjálfseignastofnunin EIR stofnuð 31.ágúst 1990. Framkvæmdaleyfi var í upphafi veitt Reykjavíkurborg og yfirtók stjálfseignastofnunin EIR það þegar hún tók við undirbúningi framkvæmda.
Sigurði H. Guðmundssyni og Grétu Guðmundsdóttur var falið að undirbúa rekstur og koma honum í framkvæmd.
Birna Kristín Svavarsdóttir var ráðin hjúkrunarforstjóri frá 1. ágúst 1992, með aðstöðu í Skjóli. Sigurbjörn Björnsson var ráðinn yfirlæknir heimilisins.
Eir var formlega opnað árið 1993. Forstjóri var Sigurður Helgi Guðmundsson, einnig forstjóri í Skjóli.
Árið 1996 var fyrsta heila starfsárið sem heimilið var í fullum rekstri.
1. desember 2001 bættust Eirarhús við Eir með 37 íbúðir og sambýli fyrir 9 einstaklinga. Sambýlið fékk nafnið Eirarholt.
2. janúar 2003 var vígð ný álma við Eir, B - álma, með 40 hjúkrunaríbúðum. Deildirnar eru tvískiptar og er um að ræða tvær 10 manna einingar á hvorri hæð. Rekstur dagdeildar hófst fyrrihluta árs 2004.


