Beint á leiðarkerfi vefsins
Eir öldrunarmiðstöð

Öryggisíbúðir á vegum Eirar

Allar öryggisíbúðirnar eru hannaðar þannig að auðvelt er að komast um með hjálpartæki svo sem hjólastóla og fleira. Íbúðirnar eru útbúnar öryggiskerfi sem tengist hjúkrunarvakt allan sólahringinn þar sem hjúkrunarfræðingur og/eða sjúkraliði sinna útköllum íbúa í vanda eða veikindum.

Íbúum gefst kostur á að kaupa hádegis- og kvöldmat frá Eir í matsal eða að fá heimsendingaþjónustu. Sjá nánar fyrirkomulag á hverjum stað fyrir sig.

Öll félagsleg heimaþjónusta og heimahjúkrun er veitt samkvæmd persónulegu mati fagfólks í samráði við þjónustuþega. Eir tryggir samþykkta þjónustu í umboði sveitarfélags. Innan borgarmarka Reykjavíkur veitir Eir félagslega heimaþjónustu og heimahjúkrun í umboði Velferðasviðs Reykjavíkur. Í Mosfellsbæ er félagsleg heimaþjónusta veitt í umboði Félagsmálaráðs Mosfellsbæjar en hinsvegar er heimahjúkrun í Mosfellsbæ veitt af Eir í umboði  Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. 


Stækka og minnka texta

Texti í sjálfgefinni stærð Texti í miðlungs stærð Texti í stórri stærð

Þú er hér:

Um Eir » Öryggisíbúðir