Sambýlið Eirarholt
Sambýlið er staðsett á 1. hæð í húsnæði öryggisíbúða Eirarhúsa.
Eirarholt er hjúkrunarsambýli fyrir heilabilaða einstaklinga og jafnframt heimilisdeild. Um er að ræða 9 einbýli en í stærstu herbergjunum geta hjón dvalið saman.
Íbúum stendur til boða öll sú þjónusta sem veitt er á Eir hjúkrunarheimili. Þá geta íbúar einnig sótt þær fjölmörgu skemmtanir sem haldnar eru á torginu við anddyri Eirar.
Sambýlið er fyrir heimilismenn sem hafa góða færni til þess að taka þátt í athöfnum daglegs lífs, samvistum við aðra heimilismenn og útiveru. Sameiginlegt setsvæði, borðstofa og garður gefa möguleika á fjölþættri samveru fyrir íbúa.
Deildarstjóri: Jóhanna Hólmsteinsdóttir 2n@eir.is sími deildarstjóra: 522 5722
Deildarsími:522 5792
Deildarfax: 522 5716
Deildarlæknir: Ólafur H. Samúelsson


