Hjúkrunarrými
Á Eir eru 155 hjúkrunarheimilisrými, 12 endurhæfingarrými og 6 skammtímarými.
Ákveðin sérhæfing er í þjónustu hverrar deildar. Hjúkrunarfræðingar eru á vakt allan sólahringinn. Hjúkrunardeildarstjórar eru við milli kl. 8 og 16 virka daga.
Ekki er unnt að bjóða öllum heimilimönnum upp á einbýli en markmiðið er að geta gert það í framtíðinni. Á heimilisdeildum eru ýmist einbýli eða tvíbýli en þríbýli eru á móttökudeild.
Áhersla er lögð á hlýlegt og heimilislegt umhverfi á deildum. Setustofur, borðstofur og svalir eru á hverri deild auk þess sem smærri sameiginleg rými gefa möguleika á fjölþættri samveru. Áhersla er lögð á að hver heimilismaður skapi sitt persónulega umhverfi með eigin munum.


