Dagvistun
Á 3. hæð í B-húsi er rekin dagþjálfun fyrir fólk með heilabilunarsjúkdóma og hefur deildin starfsleyfi fyrir 24 gesti á dag. Sumir koma 2-3 daga í viku en aðrir koma alla daga vikunnar og í hópnum eru bæði karlar og konur á breiðu aldursbili.
Til að komast á dagdeild Eirar þarf að liggja fyrir greining um heilabilunarsjúkdóm, ásamt beiðni frá lækni um dagþjálfun á deildinni. Flestir dagdeildargestir eru fljótir að finna ánægju og öryggi á staðnum enda er lögð áhersla á að skapa þar heimilislegt andrúmsloft.
Boðið er upp á ýmis verkefni til að efla bæði andlegan og líkamlegan styrk og vellíðan og reynt að koma til móts við áhugasvið og getu gestanna.
Deildarstjóri: Hafdís Jóna Stefánsdóttir netfang: dagdeild@eir.is sími deildarstjóra: 522 5730
Deildarsími: 522 5738
Deildarfax: 522 5713
Deildaræknir: Sigurbjörn Björnsson


