Vinnustofa
Aðalmarkmið með starfsemi vinnustofu er að viðhalda virkni og færni heimilismanna.
Starfsemi vinnustofu er fjölbreytileg, þar má nefna allskonar föndur, handavinnu og félagsstarf. Þá fléttast inn í dagskrána, bingó, bjórkvöld og tónleikar, einnig skemmtanir tengdar árstíðum eins og þorrafagnaður, aðventufagnaður og sumarfagnaður.
Í öllu starfi er lögð áhersla á að skapa vinalegt og þægilegt andrúmsloft þar sem heimilismenn finna sig ávallt velkomna, hvort heldur sem er í starfi eða leik.
Vinnustofan er opin alla virka daga frá kl. 13:30 - 16:30.
Umsjón með vinnustofu hefur Júlíana Árnadóttir.
vinnustofa@eir.is sími: 522 5748.


