Beint á leiðarkerfi vefsins
Eir öldrunarmiðstöð

Læknaþjónusta

Læknar á Eir eru sérfræðingar í öldrunarlækningum eða heimilislækningum. Hver deild hefur sinn deildarlækni.

Á Eir er veitt læknisþjónusta alla daga ársins. Þjónustan er veitt með fastri vikulegri heimsókn deildarlæknis og styttri heimsóknum lækna heimilisins eða vaktlækna aðra daga og um helgar. Vaktþjónusta er rekin allan sólarhringinn í tengslum við hjúkrunarheimilið Skjól.

Á hverri deild er haldinn vikulegur fundur með hjúkrunarfólki og öðrum aðilum eftir atvikum þar sem lögð er áhersla á sameiginlega lausn á vanda heimilisfólksins.

Við breytingu á líðan íbúa er meginstefnan að meðhöndla veikindi á heimilinu og líkna og hjúkra heimilismönnum innan veggja heimilisins.

Læknar ráðleggja meðferð í samráði við sjúkling eða aðstandendur hans. Með hliðsjón af læknisfræðilegu mati, vilja og óskum einstaklingsins er leitast við að veita læknisþjónustu sem er sniðin að þörfum hans og miðar að bættri heilsu og góðri líðan. Læknar heimilisins beina íbúum í sjúkraþjálfun í ljósi heilsufars þeirra.

Tannlæknir kemur reglulega á heimilið. Veitt er önnur sérfræðiþjónusta svo sem þjónusta augnlæknis, kvensjúkdómafræðings og húðlæknis.

Yfirlæknir er Sigurbjörn Björnsson.


Stækka og minnka texta

Texti í sjálfgefinni stærð Texti í miðlungs stærð Texti í stórri stærð

Þú er hér:

Þjónusta » Læknaþjónusta