Iðjuþjálfun
Iðjuþjálfun á Eir
Hlutverk iðjuþjálfa á Eir er margþætt. Einn iðjuþjálfi er starfandi í húsinu sem sinnir endurhæfingardeildinni, heimilisdeildum og dagdeild.
Endurhæfingardeildin
Hjúkrunarheimið Eir er með samning við Landspítala Háskólasjúkrahús um rekstur á endurhæfingardeild fyrir aldraða sem eru að jafna sig eftir beinbrot. Mikill hluti starfs iðjuþjálfa á Eir felst í að sinna endurhæfingardeildinni. Markmið deildarinnar er að stuðla að því að skjólstæðingurinn verði eins sjálfbjarga og mögulegt er.
Íhlutun iðjuþjálun á deildinni felst meðal annars í að meta færni skjólstæðingsins við athafnir daglegs lífs (ADL mat), þjálfun í notkun hjálpartækja og skima vitræna getu skjólstæðingsins sé þess þörf (MMSE mat og CDT test). Iðjuþjálfi býður einnig upp á heita bakstra og léttar æfingar fyrir þá sem eru slæmir af liðverkjum í höndum. Þar að auki er boðið upp á ýmsar uppákomur eins og boccia, söng/lestur og vöfflubakstur.
Góð samvinna er milli iðju- og sjúkraþjálfara og stendur hverjum skjólstæðingi til boða að gerð sé heimilisathugun. Þar er færni skjólstæðingsins metin í hans vanalega umhverfi og aðstæður metnar. Veitt er ráðgjöf um úrbætur til að minnka byltuhættur á heimilinu og um val á hjálpartækum sem nauðsynleg eru til að auka sjálfbjargargetu heima. Iðjuþjálfi sækir um hjálpartæki til Hjálpartækjamiðstöðvarinnar sem lánar skjólstæðingnum tæki eins lengi og þörf krefur.
Heimilisdeildir
Á heimilisdeildum er veitt einstaklingsþjálfun. Einstaklingurinn fær tækifæri til þátttöku í þeirri iðju sem hefur þýðingu fyrir hann og veitir honum ánægju og lífsfyllingu.
Dagdeildin
Markmið iðjuþjálfunar á dagdeild er að meta þarfir, langanir og óskir skjólstæðingsins og veita ráðgjöf um hvernig megi efla þátttöku einstaklingsins á deildinni í því starfi sem þar fer fram.
Iðjuþjálfi Eirar er Ása Lind Þorgeirsdóttir, sími 522 5747, asalind@eir.is


