Beint á leiðarkerfi vefsins
Eir öldrunarmiðstöð

Hjúkrun

hjukka_EirFramkvæmdastjóri hjúkrunar, hjúkrunardeildarstjórar og hjúkrunarfræðingar bera faglega ábyrgð á hjúkrunarþjónustu Eirar. Sjúkraliðar, félagsliðar, starfsfólk í umönnunarstörfum ásamt ræstingar og eldhúsfólki tryggir hjúkrunar- og aðra þá þjónustu sem heimilismenn þarfnast á hverjum tíma. 

Veigamikill þáttur í þjónustunni er að stuðla að aukinni sjálfsbjörg heimilisfólks. Lögð er áhersla á virðingu fyrir einstaklingnum, samvinnu við hann og fjölskyldu hans um hvaðeina sem snertir velferð hans. 

Hjúkrun heimilisfólks með heilabilun tekur mið af persónulegri getu hvers og eins þar sem reynt er að skapa öruggt, rólegt og heimilislegt umhverfi í samvinnu við ættingja og heimilisfólk. 

Hjúkrunarstjórn og læknar á Eir ákváðu að innleiða þverfaglegt meðferðarferli fyrir deyjandi haustið 2009 og er Eir fyrsta hjúkrunarheimilið á Íslandi sem tekur í notkun meðferðarferlið The Liverpool Care Pathway, sem þróað hefur verið í Bretlandi frá árinu 1997. Ferlið er notað á líknardeildum LSH og víða í Evrópulöndum. Markmið ferlisins er að tryggja ákveðin gæði í hjúkrun og meðferð við lífslok. Reglulega er metið ástand og þarfir einstaklingsins og aðstandendum er veittur stuðningur og fræðsla fyrir og eftir andlát.

Framkvæmdastjóri hjúkrunar er Birna Kr. Svavarsdóttir.


Stækka og minnka texta

Texti í sjálfgefinni stærð Texti í miðlungs stærð Texti í stórri stærð

Þú er hér:

Þjónusta » Hjúkrun