Eldhús / mötuneyti
Frá eldhúsinu í Eir er framreiddur allur matur fyrir heimilisfólk, starfsfólk og til íbúa öryggisíbúða.
Markmiðið er að framleiða hollan og fjölbreyttan heimilismat.
Næringarráð markar stefnu í næringarmálum. Næringarfræðingur er ráðgefandi varðandi matseðil og allt sérfæði heimilisins.
Aðstandendum heimilisfólks og starfsfólks stendur til boða að kaupa máltíðir.


