Beint á leiðarkerfi vefsins
Eir öldrunarmiðstöð

Fréttatilkynning

Undirbúningur er hafin að þjónustumiðstöð í Spönginni.

Borgarráð samþykkti nýlega á fundi  sínum að hefja formlegar samningaviðræður við Eir hjúkrunarheimili, Grafarvogskirkju og Korpúlfa vegna fyrirhugaðrar byggingar þjónustumiðstöðvar í Spöng í tengslum við öryggisíbúðir Eirar.

Samningaviðræðurnar byggja á fyrirliggjandi viljayfirlýsingu og samstarfssamningi frá 2006 og 2008. Skipuð verður byggingarnefnd fulltrúa fyrrgreindra aðila, sem verði til samráðs um stærð byggingar og útfærslur.

Um langt skeið hafa verið upp fyrirætlanir um byggingu menningar- og þjónustumiðstöðvar í Spöng. Vegna mikillar óvissu í rekstri Reykjavíkurborgar og þess að heildarfjármögnun lá ekki fyrir hefur framkvæmdum ekki verið hrundið af stað, eins og segir í greinargerð með tillögu borgarráðs.

Nú liggja fyrir hugmyndir um minna hús þar sem starfsemi fyrrgreindra aðila verður og er gert ráð fyrir viðbyggingarmöguleikum síðar. Samkomulag er á milli aðila um nýjar tillögur að fyrirkomulagi og uppbyggingu þjónustumiðstöðvarinnar sem samþykkt borgarráðs gerir ráð fyrir. Frekari tillögur um stærð og útfærslu verður ákveðin í samráði þeirra sem verða með starfsemi í þjónustumiðstöðinni.

Gert er ráð fyrir rekstri dagdeildar í þjónustumiðstöðinni fyrir heilabilaða á vegum Eirar og að Reykjavíkurborg leggi til húsnæði fyrir þá starfsemi.

Birna Svavarsdóttir

Hjúkrunarforstjóri Eirar


Stækka og minnka texta

Texti í sjálfgefinni stærð Texti í miðlungs stærð Texti í stórri stærð

Þú er hér:

Nýjar öryggisíbúðir » Þjónusta » Fréttatilkynning