Beint á leiðarkerfi vefsins
Eir öldrunarmiðstöð

Þjónusta í öryggisíbúðum

Þjónusta

Svalir-300Eirborgir eru öryggisíbúðir sem eru hannaðar fyrir einstaklinga eða hjón sem þurfa á félagslegri heimaþjónustu og/eða heimahjúkrun að halda.

Þörf fyrir heimahjúkrun og félagsþjónustu er metin af Velferðarsviði Reykjavíkurborgar og er þjónustan veitt frá Eir hjúkrunarheimili fyrir hönd borgarinnar. 

Öryggisvakt er í húsinu allan sólarhringinn og allar íbúðir eru tengdar við vakthafandi starfsmenn og öryggiskerfi hússins.

Þar til þjónustu- og menningarmiðstöð borgarinnar rís, starfrækir Eir matsal og alla þjónustu tengda honum fyrir íbúa.

Sér aðstaða er fyrir sjúkraþjálfun og er um að ræða hópæfingar og sérhæfða þjálfun. Í Eirborgum er sameiginleg setustofa, vísir að bókasafni og aðstaða til félagsstarfs. Samvinna er við kirkjuna og Korpúlfa um að þjónusta íbúa hússins.


Stækka og minnka texta

Texti í sjálfgefinni stærð Texti í miðlungs stærð Texti í stórri stærð

Þú er hér:

Nýjar öryggisíbúðir » Þjónusta