Beint á leiðarkerfi vefsins
Eir öldrunarmiðstöð

Íbúðir í boði og nánara fyrirkomulag

Utimynd-600

Í Eirborgum eru tveggja- og þriggjaherbergja íbúðir.

Íbúar greiða útborgun að hluta og geta síðan leigt það sem eftir stendur. Ef íbúi fellur frá eða kýs að flytjast annað verður andvirði innborgunar framreiknað með vísitölu neysluverðs, og fer endurgreiðsla fram innan sex mánaða. Til frádráttar endurgreiðslunni reiknast 2% pr.ár af framreiknaðri búseturéttarupphæðinni.

Reykjavíkurborg mun leigja 21 íbúð og framleigja síðan til skjólstæðinga sinna. ´

Viðhald á íbúðum
Eir sér um viðhald á íbúðum og sameiginlegu húsnæði og verður kostnaður 0,75% af búseturéttarupphæðinni sem framreiknast með vísitölu neysluverðs og skiptist greiðslan jafnt á mánuði. Þessi kostnaður er reiknaður inn í leiguna. Minniháttar viðhald á íbúðum sjá íbúar sjálfir um.

Fasteignagjöld
Íbúar greiða fasteignagjöld í hlutfalli við búseturétt. Þeir sem eiga rétt á lækkun eða niðurfellingu fasteignagjalda njóta þess.


Þjónustugjald

Þjónustugjald er innheimt til að mæta kostnaði m.a. vegna hita, rafmagns í sameiginlegu rými, snjómoksturs og ræstingu á sameign. Auk þessa er húseigendatrygging sem og öryggisvöktun einnig innifalin í þjónustugjaldinu.

Upphæð þjónustugjaldsins í desember 2011 er 21.700 kr. á mánuði.



Stækka og minnka texta

Texti í sjálfgefinni stærð Texti í miðlungs stærð Texti í stórri stærð

Þú er hér:

Nýjar öryggisíbúðir » Íbúðir í boði