Baðherbergi
Á baðherbergjum eru veggir dúklagðir og sérstakur öryggisdúkur verður lagður á gólf og öryggisstoðir eru við salerni. Baðinnrétting er spónlögð og kantlímd og borðplata plastlögð með gráyrjóttu harðplasti. Hægt er að koma fyrir þvottavél og þurrkara í íbúðum en auk þess er þvottaherbergi annarsstaðar í húsinu.


