Beint á leiđarkerfi vefsins
Eir öldrunarmiđstöđ

Fréttir Eir

2.1.2012

Annáll 2011 frá dagdeild

Á dagdeild Eirar hefur ýmislegt verið um að vera undanfarið ár.  

Kvennahlaupið var haldið hér á Eir í fyrsta skipti 27. maí síðastliðinn.  Dagdeildargestir tóku virkan þátt í hlaupinu og fóru nær allar konurnar hring um húsið og karlarnir tóku vel á móti þeim  við endamarkið. 

Árið um kring er dagdeildin í virku samstarfið við leikskólann Brekkuborg sem stendur ofan við Eir.  Elstu börn leikskólans hafa komið í heimsóknir á dagdeildina og vinna fullorðnir og börn saman að ákveðnum verkefnum hvert skipti.  Meðal annars hefur verið mikið sungið, perlað, spilað og spjallað.  Hafa bæði börn og fullorðnir mjög gaman af þessu samstarfi.

 

Til okkar hefur komið fjöldinn allur af skemmtikröftum yfir árið og má þar nefna hljóðfæraleikara, söngvara, kóra, töframann og dansara. 

 

Á dagdeildinni er páfagaukur sem hefur fengið nafnið Eiríkur.  Eiríkur flutti á dagdeildina í byrjun árs og hefur haft það mjög gott.  Mikið er talað við hann og hann kemur út úr búrinu oft á dag og er með fólkinu sem nýtur þess að fylgjast með honum og spjalla við hann.

 

Á vordögum var farið í heilsdagsferð austur fyrir fjall þar sem farið var á veitingastaðinn Hafið Bláa og í rútuferð um Stokkseyri, Eirarbakka, Selfoss og Hveragerði.

Síðastliðið sumar voru farnar margar kaffihúsaferðir, meðal annars  var farið í Hörpuna,  Grasagarðinn og á önnur kaffihús. 

Í haust var farið í tveimur hópum sitthvorn daginn á Sólheima í Grímsnesi þar sem fengin var fræðsla um sögu Sólheima og farið í skoðunarferð um vinnustofurnar. 

 

Ákveðið var með litlum fyrirvara að halda basar í fyrsta skipti á dagdeildinni í nóvember.   Kappkostað var við framleiðslu á ýmsum smávörum sem voru til sölu á opnu húsi 18. nóvember og verður ágóðinn notaður í skemmtiferð fyrir dagdeildargesti.   

Viðbrögðin við basarnum  voru framar öllum vonum og var ákveðið að gera þetta aftur og enn betur að ári.

 

Árlegt aðstandendakaffi var á deildinni 12. desember og var góð mæting aðstandenda eins og venjulega er á þessum degi og þökkum við fyrir samveruna þennan dag sem alltaf er notalegur.

  

Starfsfólk og gestir dagdeildar þakka fyrir árið sem er að líða og óskar ykkur öllum gleðilegs árs með myndasyrpu frá árinu 2011. 

forsíðumynd_páfagaukur

kvennahlaup_dagdeild

kvennahalup_2_dagdeild

leikskólasamstarf

töframaður_dagdeild

  dansað_dagdeild

  vorferD_dagdeild

  grasag_dagdeild  kallar_dagdeild_páfagaukur

  vinna_basar



Stćkka og minnka texta

Texti í sjálfgefinni stćrđ Texti í miđlungs stćrđ Texti í stórri stćrđ

Ţú er hér:

Fréttir